Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 179 — 176. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um innheimtu dómsekta.
Frá Brynhildi Pétursdóttur.
1. Tekur ráðherra undir sjónarmið í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá október 2012, Skýrsla um eftirfylgni: Eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar (2009), um að bæta þurfi núverandi kerfi við innheimtu dómsekta?
2. Hvernig hyggst ráðherra fylgja eftir þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni?
3. Hvað líður heildarendurskoðun laga um fullnustu refsinga, nr. 49/2005?
4. Telur ráðherra eðlilegt að hægt sé að fullnusta fésektir vegna skattalagabrota með samfélagsþjónustu?
Skriflegt svar óskast.