Ferill 181. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 185 — 181. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða,
nr. 129/1997 (upplýsingaskylda endurskoðenda).
Flm.: Vilhjálmur Bjarnason.
1. gr.
Kjörnum endurskoðanda lífeyrissjóðs er skylt að svara fyrirspurn sjóðfélaga á ársfundi um allt sem kann að varða reikningsskil og fjárhagsleg málefni sjóðsins þegar slíkt má verða án tjóns fyrir sjóðinn og eða sjóðfélaga.
2. gr.
Greinargerð.
Með frumvarpinu er lagt til að kjörnum endurskoðendum lífeyrissjóða verði skylt að svara fyrirspurnum sjóðfélaga á ársfundum um reikningsskil og fjárhagsleg málefni sjóðanna.