Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 201  —  196. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif af komu flóttamanna.

Frá Róbert Marshall.


     1.      Hver áætlar ráðherra að verði efnahagsleg áhrif af komu þeirra flóttamanna sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka á móti í ár og á næstu árum?
     2.      Hver áætlar ráðherra að séu efnahagsleg áhrif þess að taka á móti 100 innflytjendum til Íslands?