Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 209  —  203. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um greiðslur í fæðingarorlofi.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hversu margir fengu greiðslur vegna fæðingarorlofs annars vegar og fæðingarstyrk hins vegar samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, á tímabilinu 1. janúar 2010 til 1. september 2015? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári, kyni og tekjubili.
     2.      Hversu margir fengu hámarksgreiðslu í fæðingarorlofi, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, á framangreindu tímabili? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári og kyni.


Skriflegt svar óskast.