Ferill 234. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 250  —  234. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um atvinnuuppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu.

Frá Herði Ríkharðssyni.


    Hvað líður framkvæmd ályktunar Alþingis um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur- Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar, nr. 10/143, varðandi:
     a.      eflingu atvinnulífs,
     b.      sköpun nýrra starfa,
     c.      nýtingu raforku úr Blönduvirkjun?