Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 254 — 137. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur
um samfélagsþjónustu og niðurfellingu fangavistar.
1. Hyggst ráðherra leggja til breytingu á lögum eða reglum um samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar?
Í frumvarpi til nýrra fullnustulaga er lagt til að refsing sú sem hægt verði að fullnusta með samfélagsþjónustu verði allt að 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í stað níu mánaða eins og nú er. Tillagan felur í sér rýmkun á samfélagsþjónustu. Þá hefur innanríkisráðherra ritað refsiréttarnefnd erindi þar sem hann fer þess á leit við nefndina að taka til athugunar hvort æskilegt sé að setja ákvæði í almenn hegningarlög, nr. 19/1940, sem heimili dómara að dæma sakfelldan einstakling til að sæta samfélagsþjónustu eða annars konar refsingu utan fangelsis, og þá í hvaða tilvikum og að hvaða skilyrðum uppfylltum slíkt kæmi til greina.
2. Hver er afstaða ráðherra til hugmynda um að fella niður fangelsisrefsingu einstaklinga sem hafa beðið afplánunar lengi og hver væru, að mati ráðherra, hugsanleg tímamörk fyrir niðurfellingu fangavistar við slíkar aðstæður?
Ráðherra hefur ekki skoðað hvort skynsamlegt sé að fella niður fangelsisrefsingar þeirra sem beðið hafa afplánunar í langan tíma með skilorðsbundinni náðun. Þá hefur ráðherra ekki látið leggja mat á það við hvaða tímamörk yrði miðað ef slíkar aðgerðir kæmu til álita. Ráðherra bendir hins vegar á þá meginreglu að refsingum beri að fullnægja eftir efni þeirra og að náðun komi aðeins til greina í sérstökum undantekningartilvikum, þar sem sterk rök mæli með því að fella refsingu niður með náðun, t.d. ef talin er hætta á að fullnusta hennar komi til með að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir velferð dómþola.