Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 258  —  238. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um kaup á bifreiðum fyrir lögregluna.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.

     1.      Hver hefur verið árlegur kostnaður ríkisins af innkaupum á bifreiðum fyrir lögregluna sl. 5 ár og hvað hefur á sama tíma kostað að meðaltali að gera bifreið nothæfa við löggæslustörf?
     2.      Hafa Ríkiskaup óskað eftir tilboðum frá bílaframleiðendum sem framleiða sérstakar lögreglubifreiðar og ef svo er, hver er kostnaður að meðaltali við slíka bifreið?
     3.      Hafa Ríkiskaup skoðað samstarf við önnur ríki á Norðurlöndum við innkaup á bifreiðum fyrir lögregluna?


Skriflegt svar óskast.