Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.

Þingskjal 268  —  248. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um vinnuheimilið að Kleppjárnsreykjum o.fl.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Kemur til greina að vistheimilanefnd taki til skoðunar mál vinnuheimilisins að Kleppjárnsreykjum þar sem ungar stúlkur voru vistaðar?
     2.      Kemur til greina að rannsökuð verði framganga stjórnvalda gagnvart stúlkum sem áttu samskipti við hermenn á hernámsárunum hvað varðar njósnir, yfirheyrslur og meðferð?