Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 271 — 251. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins.
Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
1. Er ráðherra sáttur við að framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins 2015 hafi sætt „ritskoðun“ borgaryfirvalda í Feneyjum og sé því ekki opið almenningi?
2. Með hvaða hætti hefur ráðherra mótmælt ákvörðun borgaryfirvalda í Feneyjum?
3. Hvað ætlar ráðherra að gera til að yfirstjórn Feneyjatvíæringsins opni framlag Íslands á hátíðinni aftur fyrir almenningi?