Ferill 262. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 289 — 262. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum.
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Ásta Guðrún Helgadóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson.
1. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Tillögu um vantraust á ríkisstjórn eða ráðherra skal þó setja á dagskrá þingfundar svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en tveimur nóttum eftir útbýtingu hennar nema samkomulag um annað sé á milli þingflokka.
b. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjórðungur þingmanna getur farið fram á að atkvæðagreiðsla um tillögu um vantraust á ríkisstjórn eða ráðherra verði leynileg. Við atkvæðagreiðsluna merkir hver þingmaður við „já“ eða „nei“ á atkvæðaseðli eða skilar auðu.
2. gr.
Greinargerð.
Meginbreytingin sem frumvarpið felur í sér er að fjórðungur þingmanna geti farið fram á að atkvæðagreiðslan um vantrauststillögu verði leynileg. Markmiðið með þeirri tilhögun er að gera þingmönnum kleift að greiða atkvæði eftir sannfæringu sinni án utanaðkomandi þrýstings hvort sem hann er frá samþingsmönnum, kjósendum, fjölmiðlum eða öðrum.
Lagt er til að miðað verði við að fjórðungur þingmanna geti farið fram á að atkvæðagreiðslan verði leynileg og skrifleg þannig að þingmenn fái tilbúinn atkvæðaseðil og geti merkt við fyrir fram gerða reiti, „já“ eða „nei“, eða skilað auðu. Tillagan um að miðað verði við að fjórðungur þingmanna geti farið fram á þetta er í samræmi við ráðgefandi tilmæli þings Evrópuráðsins um réttindi og ábyrgð stjórnarandstöðunnar í störfum þinga í lýðræðisríkjum nr. 1601 (2008) og er sú regla sem birtist jafnframt í þingsköpum Alþingis.