Ferill 269. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 297 — 269. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um fíkniefnabrot.
Frá Björgvini G. Sigurðssyni.
1. Hve margir hafa afplánað fangelsisrefsingar fyrir fíkniefnabrot á Íslandi árin 1980–2015 og hvert hefur hlutfall þeirra verið af öllum sem hafa afplánað dóma á tímabilinu? Svarið óskast sundurliðað eftir árum.
2. Hve margir hafa verið sakfelldir árlega fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni árin 1980–2015?
Skriflegt svar óskast.