Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 307  —  278. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um greiningu og meðferð barna með ADHD.

Frá Páli Val Björnssyni.


     1.      Hvaða áform hefur ráðherra um að bæta aðgengi barna að greiningu á taugaþroskaröskuninni ADHD, þ.e. athyglisbresti og ofvirkni?
     2.      Hyggst ráðherra bæta aðgengi að meðferð fyrir börn sem hafa verið greind með ADHD?