Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 345  —  165. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Heiðu Kristínu Helgadóttur um sérhæfð úrræði fyrir börn.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hyggst ráðherra bregðast við ábendingu Ríkisendurskoðunar í skýrslu um stöðu barnaverndarmála síðan í maí sl. um að tryggja þurfi sérstaklega þjónustu og sérhæfð úrræði fyrir börn á aldrinum 16–18 ára sem glíma við alvarlegan vímuefnavanda og afbrotahegðun og börn með fjölþættan vanda, svo sem þroskaröskun, geðröskun og hegðunarvanda?

    Í þessu svari verður annars vegar fjallað um þjónustu við börn með alvarlegan vímuefnavanda og afbrotahegðun og hins vegar börn með þroska- og geðraskanir. Velferðarráðuneyti hefur átt viðræður við Barnaverndarstofu um stofnun nýs meðferðarheimilis fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu frá hausti 2014. Með bréfi til Barnaverndarstofu, dags. 5. júní 2015, var stofunni tilkynnt ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra um stofnun nýs meðferðarheimilis fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu. Þá fól ráðuneytið jafnframt Barnaverndarstofu að annast frumathugun framkvæmdarinnar, sbr. lög nr. 84/2001, um skipan opinberra framkvæmda, og að leita eftir samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins um gerð hennar. Á samráðsfundi ráðuneytisins og Barnaverndarstofu 25. september sl. kom fram að Barnaverndarstofa hefur fundað með Framkvæmdasýslu ríkisins og óskað eftir samstarfi vegna verkefnisins. Unnið er að þarfalýsingu fyrir húsnæði meðferðarheimilisins en til greina kemur að endurbæta og eftir atvikum bæta við eldra húsnæði í eigu ríkisins eða að byggja nýtt húsnæði.
    Samkvæmt ákvörðun ráðherra verður nýja meðferðarheimilið staðsett á höfuðborgarsvæðinu en þar búa flest ungmenni sem þurfa á slíkri þjónustu að halda. Þannig er gert ráð fyrir að meðferðin fari fram í nærumhverfi barnanna og í nálægð við sérfræðiþjónustu en á það er lögð áhersla í stefnumótun ráðuneytisins. Nýja meðferðarheimilið mun byggjast á kenningum norræna meðferðarmódelsins MultifunC en samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu gefa niðurstöður rannsókna til kynna að árangur slíkra stofnana sé betri en hefðbundinna meðferðarstofnana. Árangurinn felst m.a. í skemmri vistunartíma, minni áhættu og því að fleiri ungmenni búa heima og stunda nám eða vinnu. Nýja meðferðarheimilið er ætlað unglingum sem eru metnir í mikilli áhættu vegna hegðunar- og vímuefnavanda og þá er jafnframt gert ráð fyrir að þar geti ungmenni afplánað óskilorðsbundna fangelsisdóma og setið í gæsluvarðhaldi í lausagæslu. Aðferðir MultifunC byggjast á opnu sambandi við nærumhverfið og heimaumhverfi barnanna og lögð er áhersla á skýra markmiðasetningu og utanaðkomandi gæðaeftirlit. Stuðst er við fjölbreyttar og viðurkenndar aðferðir við hegðunarmótun og aðlögun að nær- og heimaumhverfi og eftir lok vistunar fá ungmennin frekari meðferð í heimaumhverfi.
    Mál barna með þroska- og geðraskanir kalla á aðkomu mismunandi þjónustukerfa, en ráðuneytið leggur ríka áherslu á að þjónustuþarfir einstakra barna séu metnar hverju sinni. Skilgreiningar á fötlun annars vegar og barnavernd hins vegar eiga ekki að ráða úrslitum heldur verður ávallt að horfa á þjónustuþörf og æskilega sérhæfingu og samfellu í þjónustu barna fram á fullorðinsár. Barnaverndarkerfið veitir tímabundna þjónustu og er hugsanlegt að þessi tímabundnu úrræði geti skyggt á þörf fyrir varanleg úrræði vegna fötlunar og að þjónusta á vegum barnaverndar geti komið í veg fyrir að börn fái þá faglegu og sérhæfðu þjónustu sem þau eiga rétt á og þurfa á að halda innan þjónustukerfis fatlaðs fólks.
    Í velferðarráðuneyti hefur verið unnið að mótun fjölskyldustefnu félags- og húsnæðismálaráðherra til ársins 2020 sem lögð verður fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu á yfirstandandi þingi. Þar er lagt til að unnið verði að því að tryggja samhæfða þjónustu við börn á unglingsaldri með fjölþættan vanda með því að skilgreina þörf fyrir frekari uppbyggingu meðferðarheimila og efla hugmyndafræði sem byggist á þátttöku fjölskyldunnar, svo sem MST-fjölþrepameðferð. Þá á að tryggja samfellu í stuðningi þegar barn með fjölþættan vanda nær 18 ára aldri með skýrri ábyrgðarskiptingu þjónustuaðila og þannig koma í veg fyrir rof í þjónustu. Gert er ráð fyrir að velferðarráðuneyti vinni að tillögum um samhæfða þjónustu við þennan hóp barna á árinu 2016 í samstarfi við Barna- og unglingageðdeild Landspítala, Barnaverndarstofu, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og Samband íslenskra sveitarfélaga.