Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 346 — 218. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um ógerilsneydda mjólk.
1. Hvenær var síðast gert áhættumat vegna sölu á ógerilsneyddri mjólk hérlendis?
Áhættumat, eins og það er skilgreint, hefur aldrei farið fram, enda hefur það verið talið með öllu óþarft þar sem veigamikil rök og þekking í læknisfræði, gerlafræði og faraldsfræði mæla með gerilsneyðingu og liggja til grundvallar kröfunni um að allar mjólkurvörur til sölu skuli vera gerilsneyddar. Gerilsneyðing er trygging fyrir gæðum mjólkurvara, án þess að rýra hollustugildi þeirra.
Gerilsneyðing var lögleidd hér á landi 1933 og þá fyrst og fremst til að hindra að berklar og síðar salmonellusýkingar gætu borist með hrámjólk til neytenda. Lögskipaður gerilsneyðingarferill er miðaður við að drepa berklasýkilinn og um leið nær alla aðra sýkla.
Í heilbrigðum kúm er mjólk nær gerilsnauð. Mjólkin mengast við mjaltir, hversu hreinlega sem unnið er, af kúnni, með ryki í umhverfinu, geymsluílátum og í flutningum. Tala má um tvenns konar örverur eða gerla í mjólkinni: rotnunargerla og sjúkdómsvaldandi gerla eða sýkla.
Rotnunargerlarnir geta skemmt nýja ógerilsneydda mjólk mjög hratt og dæmi um slíkar skemmdir eru súrnun, þránun og útfelling eða hleyping á próteinum.
Dæmi um sýkla er júgurbólga í kúm sem er iðulega af völdum streptó- og stafýlókokka og geta þeir valdið heiftarlegum magaverkjum, niðurgangi og uppköstum í fólki sem drykki slíka hrámjólk. Sama gildir um mjólk úr kúm sem eru sýktar af salmonellu-, listeríu- og kamfýlóbaktersýklum.
Evrópska matvælalöggjöfin, sem íslenska löggjöfin byggist á, heimilar hverju landi að ákveða hvort sala á ógerilsneyddri mjólk skuli leyfð. Hér á landi gilda eftirfarandi ákvæði um dreifingu mjólkur og mjólkurvara sem dreifa á beint til manneldis:
Mjólk sem dreift er til neytenda skal vera gerilsneydd og pakkað í neytendaumbúðir. Mjólkurvörur skulu unnar úr gerilsneyddri mjólk. Sjá þó sérákvæði um broddmjólk, sbr. svar við 4. lið hér á eftir.
2. Hefur hreinlæti og aðbúnaður mjólkurframleiðslu tekið breytingum til batnaðar síðan þá?
Hreinlæti og aðbúnaður sem og eftirlit með mjólkurframleiðslunni hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum. Þó að baráttan við júgursjúkdóma sé eilíf hefur mikill árangur náðst. Sama gildir um berkla, en síðasta tilfelli af berklum í kúm á Íslandi var greint 1959. Salmonella í kúm á Íslandi er sjaldgæf, en ekki óþekkt.
Ein af meginástæðum þess að vel hefur til tekist er gerilsneyðing mjólkur og stórbætt umgengni við vatnsból landsmanna.
3. Hefur ráðherra kynnt sér þau skilyrði sem dönsk kúabú verða að uppfylla til að fá söluleyfi á ógerilsneyddri mjólk og telur hann að yfirfæra mætti þau á íslenskar aðstæður? Hver er munurinn á þeim og reglum sem snúa að hefðbundinni mjólkursölu hérlendis?
Sala á ógerilsneyddri mjólk er leyfð í Danmörku, en með strangari reglum og sýnatökum með þeim kúabúum og því starfsfólki sem stundar mjaltir og umgengst kýrnar. Þá þarf viðkomandi bú að uppfylla allar gæðakröfur danskra afurðastöðva en þær kröfur ganga oft mun lengra en opinberar kröfur.
Helstu kröfur til sölu á ógerilsneyddri mjólk í Danmörku beint til neytenda umfram kröfur til sölu á hrámjólk til mjólkurbúa á Íslandi eru:
– Framleiðandinn skal tryggja með eigin innra eftirlitskerfi að mjólkin standist allar gæðakröfur sem varða frumufjölda, lyfjaleifar og gerlafjölda og skal sérstaklega leita að salmonellu- og E. coli-gerlum.
– Framleiðandinn þarf að hafa sérstakt leyfi frá viðkomandi matvælaeftirliti og til að fá það þarf hjörð hans að vera laus við salmonellugerla og hafa fullkomið eigið innra eftirlit.
– Mjólkina má bara selja á bænum sem hráa og ómeðhöndlaða og skal kaupandinn koma sjálfur á bóndabæinn með sín eigin ílát undir mjólkina.
– Mjólkina verður að selja innan sólarhrings frá mjöltun þar sem hún hefur verið kæld undir 6°C strax eftir mjöltun og haldið við það hitastig.
– Bóndi má aðeins selja 70 lítra á viku sem ógerilsneydda mjólk.
Það væri framkvæmanlegt að yfirfæra dönsku reglurnar á íslenskar aðstæður, en það mundi þýða aukinn kostnað fyrir viðkomandi framleiðanda að standa straum af sínu eigin innra eftirliti og sennilega hærri eftirlitsgjöldum frá viðkomandi matvælaeftirliti.
4. Hvers vegna er sala á broddmjólk leyfð í milliliðalausri sölu en ekki sala á ógerilsneyddri mjólk?
Þrátt fyrir hið almenna bann við sölu á ógerilsneyddri mjólk er heimilt að dreifa ógerilsneyddri broddmjólk. Vottorð Matvælastofnunar skal fylgja hverri sendingu og liggja fyrir á sölustað til staðfestingar. Broddmjólkinni skal pakka í nýjar einnota neytendaumbúðir sem eru þannig gerðar að þær komi í veg fyrir að hún spillist með einhverjum hætti. Broddmjólkina skal frysta strax eftir pökkun og ber að tryggja að hún haldist frosin (við a.m.k. -18°C) frá því að hún fer frá framleiðanda uns sala fer fram. Merkja skal umbúðir með pökkunardegi, „best fyrir“ dagsetningu, nafni framleiðanda og framleiðslustað, auk annarra merkingarskyldra atriða samkvæmt reglugerð um merkingu, kynningu og auglýsingu matvæla.
Broddur er nánast aldrei framreiddur nema búið sé að hita hann upp undir suðumark og þar með hefur hann hlotið þá gerilsneyðingu sem til þarf. Auk þess er hann yfirleitt seldur frosinn og hefur frysting farið fram í lokuðum umbúðum sem boðnar eru til sölu. Frystingin stöðvar vöxt þeirra gerla sem hugsanlega gætu verið til staðar í broddmjólkinni.
5. Telur ráðherra að endurskoða eigi áhættumatið og kanna sölu á ógerilsneyddri mjólk í milliliðalausri sölu?
Vel kæmi til greina að setja reglur til að heimila slíkt ef óskir þess efnis kæmu fram. Þó er ítrekað ef slíkt yrði gert mundu gilda um það auknar kröfur um heilbrigði, magn og fleira, sbr. sams konar reglur í Danmörku.