Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 349 — 236. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Þórðardóttur um starfsemi umdæmissjúkrahúss Austurlands.
1. Er stefna stjórnvalda að draga stórlega úr þjónustu umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað með því að fjársvelta stofnunina ár eftir ár og taka ekki þátt í kostnaði við þjónustu farandsérfræðinga?
Það er ekki stefna ráðuneytisins að draga úr þjónustu sjúkrahússins í Neskaupstað. Fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Austurlands og sjúkrahússins í Neskaupstað hafa lotið sömu úthlutunarreglum og hliðstæðar stofnanir annars staðar á landinu. Raunhækkun fjárveitinga til stofnunarinnar frá 2013 hefur verið 123,4 millj. kr. eða 5,5% umfram verðlagshækkanir. Meðfylgjandi tafla sýnir fjárveitingar til stofnunarinnar árin 2013–2015 og upphæð í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016.
| Fjárlög | Frumvarp | ||
| 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
| 2.236,0 | 2.353,9 | 2.474,6 | 2.778,1 |
Fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar Austurlands eru 2.778,1 millj. kr. í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2016 og hafa hækkað um 542,1 millj. kr. frá fjárlögum 2013. Þar af er raunhækkun um 123,4 millj. kr., eða um 5,5%. Hækkun fjárframlaga umfram verðlagsákvæði fjárlaga er ætlað að styrkja rekstur og þjónustu stofnunarinnar. Í fjárlögum ársins 2014 hækkuðu fjárframlög til stofnunarinnar um 60 millj. kr. til að styrkja rekstur hennar og í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir samtals 48,1 millj. kr. til aukinnar þjónustu, svo sem heimahjúkrunar, sálfræðiþjónustu og til fjölgunar á námsstöðum fyrir heilsugæslulækningar og heilsugæsluhjúkrun. Þá hækkaði fjárveiting til stofnunarinnar á tímabilinu til að standa straum af kostnaði við hækkun á húsaleigu, annars vegar til Ríkiseigna og hins vegar vegna nýrrar hjúkrunarálmu á Egilsstöðum.
Stofnunin er því ekki fjársvelt fremur en aðrar stofnanir. Kostnaður við þjónustu farandsérfræðinga er að mestu greiddur af Sjúkratryggingum Íslands.
2. Er áformað að lækka starfshlutfall rekstrarstjóra umdæmissjúkrahúss Austurlands og þá hversu mikið?
Starfsmannamál og ráðningarhlutföll einstakra starfa á heilbrigðisstofnunum eru undir stjórn forstjóra án afskipta ráðuneytisins. Samkvæmt upplýsingum forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands er starfshlutfall rekstrarstjóra sjúkrahússins í Neskaupstað 100% og verður svo áfram.
3. Hefur farið fram athugun á hagkvæmni þess að starfrækja fæðingar-, bráða- og skurðstofuþjónustu fyrir einfaldari aðgerðir á Austurlandi í stað þess að senda fólk sem þarf á þessari þjónustu að halda í aðra landsfjórðunga og á hvaða forsendum er núverandi tilhögun reist?
Skurðstofa hefur verið rekin á sjúkrahúsinu í Neskaupstað um áratuga skeið og hafa ekki verið uppi áform um að breyta því. Það er mat ráðuneytisins að slíkt sé hagkvæmast fyrir íbúa svæðisins. Hins vegar hefur verið mjög erfitt að fá skurðlækna til starfa við sjúkrahúsið á síðari árum og á það við um fleiri sjúkrahús á Íslandi sem eru í svipaðri stöðu.
4. Á fulltrúi umdæmissjúkrahúss Austurlands sæti í stjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands? Ef svo er ekki, hvaða skýringar eru á því og hvað ræður skipan stjórnar?
Heilbrigðisstofnun Austurlands er stjórnað af forstjóra og framkvæmdastjórn sem er skipuð fulltrúum skv. 12. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Auk forstjóra, framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar er fjármálastjóri jafnframt fulltrúi í framkvæmdastjórn. Engin heilbrigðisstofnun er með fulltrúa einstakra starfsstöðva í stjórn og eru stjórnarfulltrúar í forsvari fyrir stofnunina í heild, allar starfseiningar hennar.
5. Er að því stefnt að endurhæfingarstarf það sem fram fer við umdæmissjúkrahús Austurlands verði starfrækt áfram og mun sjúkrahúsið hljóta stuðning til þess frá ráðherra og ráðuneyti?
Engar breytingar eru fyrirhugaðar á endurhæfingarstarfi við stofnunina.
6. Hversu mikilvægur er flugvöllurinn í Neskaupstað fyrir heilbrigðisþjónustu á staðnum og hyggst ráðherra stuðla að því að flugvöllurinn gegni hlutverki sem sjúkraflugvöllur?
Að mati ráðuneytisins er flugvöllurinn í Neskaupstað mjög mikilvægur fyrir heilbrigðisþjónustu á svæðinu, einkum fram til þess að jarðgöng milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar verða tekin í notkun. Ráðherra styður að flugvöllurinn verði sem oftast tiltækur fyrir sjúkraflutninga líkt og hliðstæðir flugvellir annars staðar á Íslandi.