Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 371  —  321. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um eftirfylgni áætlunar um aðgerðir gegn mansali.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hefur ráðherra fylgt eftir áætlun um aðgerðir gegn mansali árin 2013–2016 og ef svo er, þá hvernig?
     2.      Hefur ríkislögreglustjóri fylgt eftir því sem fram kemur í kafla 5.5. um að þróa betri úrræði fyrir vitnavernd?
     3.      Hversu miklu fé hefur verið varið til starfs samkvæmt áætluninni og í hvaða liði hennar hefur það verið notað?


Skriflegt svar óskast.