Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 372  —  322. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um eftirfylgni
áætlunar um aðgerðir gegn mansali.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.

     1.      Hefur ráðherra fylgt eftir þeim þáttum sem eru á verkefnasviði ráðuneytisins í áætlun um aðgerðir gegn mansali árin 2013–2016 og ef svo er, þá hvernig?
     2.      Sér ráðherra fyrir sér frekari vinnu í þessum málaflokki sem ekki kemur fram í áðurnefndri áætlun?


Skriflegt svar óskast.