Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 384 — 203. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um greiðslur í fæðingarorlofi.
1. Hversu margir fengu greiðslur vegna fæðingarorlofs annars vegar og fæðingarstyrk hins vegar samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, á tímabilinu 1. janúar 2010 til 1. september 2015? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári, kyni og tekjubili.
Samkvæmt upplýsingum frá Fæðingarorlofssjóði eru tölur vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árunum 2012–2015 ekki endanlegar í ljósi þess að foreldrar umræddra barna geta enn nýtt réttindi sín til fæðingarorlofs skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum. Foreldrar barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árinu 2012 geta tekið fæðingarorlof þangað til barnið nær 36 mánaða aldri en fæðingarorlof foreldra barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árinu 2013 eða síðar fellur niður er barnið nær 24 mánaða aldri. Þannig geta foreldrar barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á seinni hluta áranna 2012 og 2013 enn nýtt sér fæðingarorlof sitt hafi þeir ekki þegar nýtt sér það sem og foreldrar barna sem fæddust, voru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árunum 2014 og 2015.
Í meðfylgjandi töflum frá Fæðingarorlofssjóði er miðað við fæðingarár barna, það ár sem þau eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur, en ekki er miðað við greiðsluár. Tafla 1 sýnir fjölda lifandi fæddra barna 1959–2014. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands fæddust 4.375 lifandi börn á Íslandi árið 2014, þar af voru 2.233 drengir og 2.142 stúlkur. Um var að ræða fjölgun um 49 börn frá árinu 2013. Aldrei hafa fæðst fleiri börn á Íslandi en árið 2009 þegar fæddust 5.026 lifandi börn, 2.561 drengur og 2.465 stúlkur.
Tafla 1.
| Ár | 1959 | 1960 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 |
| Börn | 4.837 | 4.916 | 4.560 | 4.835 | 5.026 | 4.907 | 4.492 | 4.533 | 4.326 | 4.375 |
Tafla 2 sýnir heildaryfirlit yfir fjölda foreldra á vinnumarkaði sem fengið hafa greitt fæðingarorlof vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fæðingarárin 2010 til loka ágúst 2015, sundurliðað eftir meðaltalstekjum þeirra fyrir fæðingarorlof.
Tafla 2.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 3 sýnir heildaryfirlit yfir fjölda foreldra sem fengið hafa greiddan fæðingarstyrk vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fæðingarárin 2010 til loka ágúst 2015. Annars vegar er að finna upplýsingar um fæðingarstyrk til foreldra utan vinnumarkaðar og hins vegar fæðingarstyrk til foreldra í fullu námi.
Tafla 3.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Samkvæmt framangreindum upplýsingum er ljóst að undanfarin ár hefur mæðrum fjölgað sem hvorki fá greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði né greiddan fæðingarstyrk. Árið 2011 var um að ræða 84 mæður, árið 2012 voru þær 119, árið 2013 voru þær 130 og árið 2014 voru 138 mæður sem hvorki fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði né greiddan fæðingarstyrk. Tafla 4 sýnir fjölda foreldra sem hafa fengið greiðslur í fæðingarorlofi og fæðingarstyrk sem og hlutfall þeirra miðað við fjölda fæðinga á ári.
Tafla 4.
Fjöldi foreldra sem fá greiðslur í fæðingarorlofi og fjöldi fæðinga.
| Ár | Fæðingar | Orlof kk | Orlof kvk | Styrkir kk | Styrkir kvk | Alls fæðingar- orlof kk | Alls fæðingar- orlof kvk |
| 2009 | 5.026 | 3.874 | 4.013 | 390 | 955 | 4.264 | 4.968 |
| Hlutfall | 77% | 80% | 8% | 19% | 85% | 99% | |
| 2010 | 4.907 | 3.660 | 3.839 | 372 | 982 | 4.032 | 4.821 |
| Hlutfall | 75% | 78% | 8% | 20% | 82% | 98% | |
| 2011 | 4.492 | 3.229 | 3.484 | 328 | 924 | 3.557 | 4.408 |
| Hlutfall | 72% | 78% | 7% | 21% | 79% | 98% | |
| 2012 | 4.533 | 3.231 | 3.482 | 343 | 932 | 3.574 | 4.414 |
| Hlutfall | 71% | 77% | 8% | 21% | 79% | 97% | |
| 2013 | 4.326 | 3.002 | 3.285 | 350 | 911 | 3.352 | 4.196 |
| Hlutfall | 69% | 76% | 8% | 21% | 77% | 97% | |
| 2014 | 4.375 | 3.019 | 3.359 | 320 | 878 | 3.339 | 4.237 |
| Hlutfall | 69% | 77% | 7% | 20% | 76% | 97% |
2. Hversu margir fengu hámarksgreiðslu í fæðingarorlofi, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, á framangreindu tímabili? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári og kyni.
Samkvæmt upplýsingum frá Fæðingarorlofssjóði hafa 1.023 foreldrar fengið hámarksgreiðslu í fæðingarorlofi það sem af er ári en tafla 5 sýnir heildaryfirlit yfir fjölda foreldra á vinnumarkaði sem fengið hafa hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fæðingarárin 2010 til loka ágúst 2015.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 5.
Samkvæmt upplýsingum frá Fæðingarorlofssjóði var hlutfall foreldra sem fékk hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði árið 2010 um 31% allra foreldra sem fengu greitt fæðingarorlof. Þá var hlutfall mæðra sem fékk hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði um 18% en hlutfall feðra um 50%. Árið 2013 hækkaði hámarksgreiðsla til foreldra í fæðingarorlofi í 350.000 kr. og hlutfall foreldra sem fékk hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði var um 30%. Þá var hlutfall mæðra sem fékk hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði um 19% en hlutfall feðra um 43%. Árið 2014 hækkaði hámarksgreiðsla til foreldra úr Fæðingarorlofssjóði í 370.000 kr. og hlutfall foreldra sem fékk hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði var um 28,4%. Þá var hlutfall mæðra sem fékk hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði um 17% en hlutfall feðra um 41%.