Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 440  —  253. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Ernu Indriðadóttur um tekjur 67 ára og eldri.


    Fyrirspurnin orðast svo:
     Hversu margir 67 ára og eldri hafa tekjur undir 300.000 kr. á mánuði?

    Á síðasta skattári skiluðu 44.680 einstaklingar 67 ára og eldri skattframtali. Af þeim höfðu 31.028 tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 69,4% af hópnum. Hér er miðað við samanlagðar tekjur að meðtöldum greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Ef eingöngu er miðað við aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun, t.d. atvinnutekjur, lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur, höfðu 34.239 tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 76,6% af hópnum.     Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins fengu í nóvember 2014 32.200 einstaklingar greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Af þeim höfðu 21.864 einstaklingar tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 67,90% af hópnum. Hér er miðað við samanlagðar tekjur að meðtöldum greiðslum frá stofnuninni. Ef eingöngu er miðað við aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun, t.d. atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur, höfðu 25.952 einstaklingar tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 80,60% af hópnum. Þá fengu 2.604 heimilismenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum greidda vasapeninga frá Tryggingastofnun ríkisins. Af þeim höfðu 2.324 tekjur undir 300.000 kr. á mánuði eða 89,25% af hópnum.