Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 443 — 281. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur um
útgjöld vegna sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstarfa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu miklu fé hefur verið varið til kaupa á sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörfum fyrir ráðuneytið frá upphafi árs 2014? Hverjir hafa fengið greiðslur af þessum ástæðum og fyrir hvaða verkefni?
Tilfallinn kostnaður vegna kaupa á sérfræðiþjónustu, sem fyrirspurnin nær til samkvæmt túlkun ráðuneytisins, nam á árinu 2014 62.762.175 kr. og á árinu 2015, fram til loka októbermánaðar, 26.382.292 kr.
Eftirtaldir aðilar unnu tilgreind verkefni fyrir ráðuneytið á tímabilinu:
| Nafn | Verkefni |
| Aagot Vigdís Óskarsdóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Aðalheiður Jóhannsdóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Analytica ehf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Arnaldur Hjartarson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Arndís Ósk Jónsdóttir | Ráðgjöf vegna innri starfsemi |
| Árnasynir slf. | Vinna við almannatengsla og markaðsráðgjöf |
| Ásgeir Jónsson | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Björg Thorarensen | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Capacent ehf. | Ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi forsætisráðuneytis |
| Capacent ehf. | Skýrsla m. samanburði ráðuneyta, sérgreining |
| Capacent ehf. | Verkefni vegna útgáfu handbókar um undirbúning og frágang lagafrumvarpa |
| Capacent ehf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Capacent ehf. | Vinna fyrir nefnd um leiðir til að sporna við sjálfvirkum verðlagshækkunum |
| DECIDEACT | Vinna vegna OECD ráðstefnu 18.–19. júní 2014 |
| Dóra Guðmundsdóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Efla hf. | Vinna við gerð eigendastefnu vegna þjóðlendna |
| Einar Hugi Bjarnason | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Elín Ósk Helgadóttir | Verkefni fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál |
| Framlag ehf. | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta |
| Fúnksjón slf. | Vinna við sameiningu allra vefja ráðuneyta í einn vef |
| G 47 ehf. | Ráðgjöf á sviði upplýsingamála |
| Gagarín ehf. | Sérfræðingur á Northen Future Forum 2014 |
| Guðmundur Oddur Magnsson | Álitsgerð um liti íslenskra fánans |
| Guðný Kristín Finnsdóttir | Mat á fýsileika að færa verkefni frá ráðuneytum til sýslumanna |
| Gunnar Narfi Gunnarsson | Verkefni vegna innleiðingar á EES-gerðum á sviði hagsýslugerðar |
| Gunnar Narfi Gunnarsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Gunnar Páll Baldvinsson | Verkefni fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál |
| Gunnar Páll Baldvinsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Haukur Arnþórsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Háskóli Íslands | Vinna sérfræðings á sviði menningararfs |
| Háskólinn á Akureyri | Vinna við könnun á svæðisbundnum og þjóðhagsleg áhrifum af beinu millilandaflugi til Akureyrar eða Egilsstaða |
| Hrefna Friðriksdóttir | Vinna fyrir nefnd sem kannar starfsemi vist- og meðferðaheimila fyrir börn |
| Iða Brá Benediktsdóttir | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Karl Axelsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| KPMG ehf. | Vinna við sameiningu allra vefja ráðuneyta í einn vef |
| Kristján Andri Stefánsson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Kristrún Mjöll Frostadóttir | Vinna fyrir starfshóp um brotaforðakerfi |
| Kvant ehf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Kver ehf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Landform ehf. | Vinna vegna þjóðlendumála |
| LEX ehf. | Álitsgerð vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar |
| LEX ehf. | Ráðgjöf vegna lífeyrismála |
| LEX ehf. | Vinna fyrir nefnd um eftirlitstofnanir ríkisins |
| Lixia slf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Logi Kjartansson | Vinna fyrir nefnd um eftirlitstofnanir ríkisins |
| Lögbjörg ehf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Lögmannsþjónusta Einars H slf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Lögmenn Lækjargötu ehf. | Vinna fyrir ráðgjafarhóp um afnám hafta |
| Lögvernd ehf. | Verkefni vegna vinnu við einföldun regluverks |
| Lögvernd ehf. | Vinna fyrir nefnd um eftirlitstofnanir ríkisins |
| Marías Halldór Gestsson | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta |
| Maskína rannsóknir ehf. | Vinna fyrir verkefnahóp um sameiginlega stoðþjónustu |
| Meltún ehf. | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta |
| Nína Guðríður Sigurðardóttir | Ráðgjöf vegna lífeyrismála |
| Oddur Þorri Viðarsson | Verkefni fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál |
| Ólafur Þórður Harðarson | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Ragnhildur Helgadóttir | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Ríkiskaup | Ráðgjöf vegna útboðsmála |
| Seapool ehf. | Vinna fyrir sérfræðingahóp um höfuðstólslækkun húsnæðismála |
| Skúli Magnússon | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Staðarhóll ráðgjöf slf. | Vinna fyrir stjórnarskrárnefnd |
| Stafnasel slf. | Verkefni vegna verðtryggingamála |
| Steindór Dan Jensen | Verkefni vegna vinnu við einföldun regluverks |
| Steindór Dan Jensen | Vinna fyrir ráðgjafanefnd um opinberar eftirlitsreglur |
| Thales slf. | Vinna fyrir ráðgjafahóp um afnám hafta |
| Valdimar Ármann | Verkefni vegna verðtryggingamála |