Ferill 291. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 477  —  291. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Björgvini G. Sigurðssyni
um kostnað við ljósleiðaravæðingu landsins.


     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður, sundurliðaður eftir landshlutum, við ljósleiðaravæðingu landsins alls ef öll sveitarfélög landsins verða tengd ljósleiðara þannig að þau geti lagt hann að hverju heimili og fyrirtæki?
    Það er hlutverk markaðarins að byggja upp og bjóða fjarskiptaþjónustu. Heildarvelta skráðra fjarskiptafélaga á Íslandi árið 2014 var rúmir 52 milljarðar kr. og námu fjárfestingar þeirra tæpum 8 milljörðum kr. Fjárfestingar sem hlutfall af veltu var 15% árið 2014 og fer hækkandi.
    Takmörkuð fjarskiptaþjónusta er í boði fyrir hluta landsmanna og er hætt við að svo verði áfram nema til komi aukin markaðsuppbygging eða aðkoma opinberra aðila. Þetta getur átt við um 2–4% heimila og fyrirtækja í landinu.
    Starfshópur um alþjónustu í fjarskiptum og útbreiðslu háhraðanettenginga skilaði skýrslu um landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða í mars 2015 undir yfirskriftinni „Ísland ljóstengt – landsátak í uppbyggingu fjarskiptainnviða“. Í skýrslunni er m.a. að finna upplýsingar um áætlaðan heildarstofnkostnað við að ljósleiðaravæða lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með heilsársstarfsemi utan þéttbýlis sem á þeim tímapunkti áttu ekki kost á ljósneti eða ljósleiðara og slík uppbygging var ekki hafin eða umsamin af hálfu markaðsaðila og sveitarfélaga. Til að áætla heildarstofnkostnað við uppbygginguna var grófhannað ljósleiðarakerfi sem næði til þeirra um það bil 3.800 staða í alls 61 sveitarfélagi sem talið var að heyrðu undir verkefnið. Kostnaðarvikmörk voru +/−15% og gert ráð fyrir því að fyrirliggjandi innviðir yrðu nýttir. Framsetning kostnaðar miðaðist við að undanskilja 0,1% af dýrustu stöðum landsins, alls 125 staði, og ná stofnkostnaði þannig niður um 1.000 millj. kr. Áætlaður heildarstofnkostnaður í mars 2015 á landshluta var eftirfarandi:

Landshluti Millj. kr.
Austurland 698
Höfuðborgarsvæðið 207
Norðurland eystra 1.064
Norðurland vestra 1.007
Reykjanes 50
Suðurland 1.417
Vestfirðir 430
Vesturland 989
Alls: 5.865

    Síðan skýrsla starfshópsins kom út hefur töluvert verið unnið í málinu. Ráðherra fól í vor nýjum starfshópi að vinna tillögur að nánari útfærslu á skipulagi og framkvæmd landsátaksins. Vinna starfshópsins er langt komin. Þar er til skoðunar m.a. umfangsmikil greining á mögulegri samleið með öðrum framkvæmdum orku- og veitufyrirtækja á næstu árum. Uppbygging markaðsaðila og sveitarfélaga hefur einnig haldið áfram í nokkrum sveitarfélögum á tímabilinu. Umfang verkefnisins hefur því dregist saman að teknu tilliti til þeirra sveitarfélaga sem verið er að ljósleiðaravæða að hluta eða öllu leyti. Nú falla um 3.300 staðir undir verkefnið að því er talið er. Heildarstofnkostnaður í nóvember 2015 á landshluta er nú áætlaður eftirfarandi:

Landshluti Millj. kr.
Austurland 689
Höfuðborgarsvæðið 207
Norðurland eystra 672
Norðurland vestra 966
Reykjanes 50
Suðurland 1.386
Vestfirðir 357
Vesturland 866
Alls: 5.194

    Rétt er að hafa í huga að þar sem fjarskiptaþjónusta er almennt veitt á markaðsforsendum þarf hvers kyns opinber stuðningur við uppbyggingu ljósleiðarakerfa m.a. að grundvallast á niðurstöðu markaðskönnunar. Slík könnun er framkvæmd með opinberri auglýsingu í fjölmiðlum og viðræðum við stóra hagsmunaaðila. Tilkynni markaðsaðilar um slík áform ber að taka tillit til þeirra áforma við afmörkun svæða sem mögulegur ríkisstuðningur nær til. Niðurstaða slíkrar markaðskönnunar getur því breytt umfangi og kostnaði. Að sama skapi munu sveitarfélög örugglega endurskoða eigin áform um uppbyggingu með hliðsjón af endanlegri útfærslu á aðkomu ríkisins að verkefninu. Þetta og fleira mun því hafa áhrif á endanlegan heildarstofnkostnað og skiptingu þess kostnaðar milli hagsmunaaðila.

     2.      Er til tímasett áætlun um aðkomu ríkisvaldsins að ljósleiðaravæðingu landsins alls?
    Með vísun í umrædda skýrslu starfshópsins er nú unnið að nánari útfærslu á svokallaðri „leið tvö, samstarfsleið – landsátak í samvinnu ríkis og sveitarfélaga“. Sérstaklega er horft til samstarfs opinberra aðila og samleiðar jarðvinnuframkvæmda. Umtalsverð uppbygging hefur átt sér stað á árinu frá því að skýrslan kom út. Því er enn talið raunhæft að ljúka umræddri uppbyggingu fyrir árslok 2020 miðað við að uppbygging á grundvelli landsátaksins hefjist á næsta ári. Þar skiptir miklu máli aðkoma notenda og sveitarfélaga og úr hvaða fjármunum verður að spila. Möguleg aðkoma ríkisvaldsins mun ekki útiloka sjálfstæða uppbyggingu sveitarfélaga ef þau svo kjósa.

     3.      Standa yfir viðræður við sveitarfélögin um ljósleiðaravæðingu?
    Ekki standa yfir formlegar viðræður við sveitarfélög um ljósleiðaravæðingu. Hins vegar hefur fyrrnefnd skýrsla starfshópsins verið kynnt sveitarfélögum auk þess sem margs konar samtal hefur átt sér stað við samtök sveitarfélaga og einstök sveitarfélög. Unnið er að útfærslu ljósleiðaraverkefnisins en ótímabært er að fjalla um mögulega útfærslu á þessu stigi.