Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 490  —  365. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um námskeið og þjálfun lögreglumanna erlendis.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hversu margir lögreglumenn hafa verið sendir á námskeið og í þjálfun til annarra landa sl. 10 ár?
     2.      Til hvaða landa hafa lögreglumenn sótt námskeið og þjálfun á fyrrgreindu árabili?
     3.      Er með þessum ferðum um reglubundna þjálfun þeirra að ræða?
     4.      Hver er tilgangur ferðanna og hver greiðir kostnaðinn?


Skriflegt svar óskast.