Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 491  —  366. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um rekstrarform í heilbrigðisþjónustu.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Stendur til að breyta rekstrarformi innan heilsugæslunnar eða annarra heilbrigðisstofnana? Ef svo er, hvert er markmiðið með breytingunni, hvaða faglegu og fjárhagslegu ástæður liggja þar að baki og hyggst ráðherra bera breytinguna undir Alþingi?
     2.      Stendur til að bjóða út rekstur á heilsugæslustöðvum eða öðrum heilbrigðisstofnunum?


Skriflegt svar óskast.