Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 511  —  377. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um sundurliðaðan kostnað við sérfræði-, ráðgjafar- og kynningarstörf.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


    Hvernig sundurliðast greiðslur til þeirra sem tilgreindir eru í svari á þingskjali 443? Óskað er eftir að fram komi upphæð sem greidd var hverjum aðila, upphæð virðisaukaskatts og tilefni greiðslu.


Skriflegt svar óskast.