Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 516 — 322. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur
um eftirfylgni áætlunar um aðgerðir gegn mansali.
1. Hefur ráðherra fylgt eftir þeim þáttum sem eru á verkefnasviði ráðuneytisins í áætlun um aðgerðir gegn mansali árin 2013–2016 og ef svo er, þá hvernig?
Í áætlun ríkisstjórnar Íslands um aðgerðir gegn mansali 2013–2016 eru þrjár aðgerðir þar sem velferðarráðuneytið er skáður ábyrgðaraðili. Þær eru: 9. aðgerð að „tryggja að öllum fórnarlömbum mansals standi til boða líkamleg, félagsleg og sálræn aðstoð óháð lögheimilisskráningu og því hvort viðkomandi er í lögmætri eða ólögmætri dvöl“, 10. aðgerð að „tryggja öruggt húsnæði fyrir öll fórnarlömb mansals“ og 11. aðgerð að „skoða möguleika á að þróa úrræði til að bæta félagslega færni og andlega líðan“. Heildarumsjón með málaflokknum liggur hjá innanríkisráðuneyti. Áætlunin tekur bæði til fórnarlamba mansals og meintra fórnarlamba, hér eftir er hvort tveggja kallað fórnarlömb mansals.
Reynslan sýnir að fórnarlömb mansals geta þurft á margþættri aðstoð og ráðgjöf að halda m.a. sálfræðiþjónustu, læknisþjónustu, félagsþjónustu og lögfræðiráðgjöf. Félagsþjónusta viðkomandi sveitarfélags veitir fórnarlömbum félagsþjónustu, þar með talin félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð fyrir brýnustu nauðsynjum og endurgreiðir velferðarráðuneytið sveitarfélögum útlagðan kostnað vegna erlendra ríkisborgara samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsleg aðstoð við fórnarlömb mansals fer ævinlega fram í umsjón félagsráðgjafa eða annarra sérfræðinga hjá viðkomandi sveitarfélagi
Velferðarráðuneytið gerði samning við Kvennaathvarfið í árslok 2014 um þjónustu við fórnarlömb. Markmið samningsins er að tryggja kvenkyns fórnarlömbum mansals örugga neyðardvöl. Með þessu úrræði getur lögreglan og aðrir samstarfsaðilar milliliðalaust boðið fórnarlömbum öruggt skjól á meðan rannsókn máls stendur yfir og samhliða veita sérfræðingar í velferðarþjónustu ráðgjöf og stuðning eftir því sem þörf er á. Ef karlmaður þarf á húsnæðisúrræði að halda er leyst úr því með dvöl gistiheimili sem félagsþjónusta sveitarfélags sér um eða með öðrum tryggum hætti í samráði við lögregluyfirvöld.
Fórnarlömb mansals eiga rétt á heilbrigðisþjónustu í neyðartilvikum, sbr. reglugerð nr. 1088/2014, og dæmi eru um að fórnarlömb hafi leitað til heilsugæslustöðva og Landspítalans þar sem þau hafa notið eftir atvikum þjónustu neyðarmóttöku, geðsviðs og fæðingardeildar. Þá stendur fórnarlömbum mansals af erlendu bergi til boða lögfræðiráðgjöf hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands samkvæmt samningi við velferðarráðuneytið.
Velferðarráðuneytið á fulltrúa í fræðsluteymi þar sem markmiðið er að veita fræðslu um mansal þannig að bera megi kennsl á möguleg fórnarlömb og viðhafa rétt viðbrögð ef grunur vaknar. Hefur teymið m.a. haldið fræðslufundi fyrir starfsfólk félagsþjónustu, stéttarfélög, skólastjórnendur og ýmsar ríkisstofnanir í Reykjavík, Reykjanesbæ og á Selfossi og Akureyri, alls 30 fundi á tímabilinu maí 2014 til október 2015. Um það bil 1.000 manns hafa setið þessa fundi. Frumkvæði að stofnun teymisins kom frá innanríkisráðuneytinu.
Á vegum velferðarráðuneytis starfa tvö teymi sem vinna í samræmi við framangreindar þrjár aðgerðir. Annað teymið er samráðs- og samhæfingarteymi, en hitt er framkvæmdateymi sem tekur einstök mál til meðferðar.
Samráðs- og samhæfingarteymið: Verkefni teymisins er að hafa heildarsýn yfir mögulega þjónustu við fórnarlömb mansals svo unnt sé að veita þeim viðeigandi aðstoð. Með skipan þess var komið á samráðs- og umræðuvettvangi um mansalsmál þar sem tækifæri gefst til að miðla upplýsingum um úrræði og hlutverk ýmissa aðila á sviði velferðarþjónustu, löggæslu og mannréttindamála. Teymið vinnur nú að gerð verkferla fyrir einstök mál. Í því sitja fulltrúar frá velferðarráðuneyti, innanríkisráðuneyti, Landspítala, Mannréttindaskrifstofu Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Stígamótum, Kvennaathvarfi, Útlendingastofnun, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, velferðarsviði og mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur, Vinnumálastofnun og Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Framkvæmdateymið er skipað tilteknum fulltrúum úr samráðsteyminu og tekur það einstök mál til meðferðar og úrlausnar. Hlutverk teymisins er að tryggja hverju og einu fórnarlambi mansals nauðsynlega þjónustu og hafa fulltrúar teymisins milliliðalaust samband sín á milli. Það getur skipt sköpum við rannsókn máls að meintu fórnarlambi standi fyrirvaralaust til boða öruggt skjól og framfærsla svo áhyggjur af því hafi ekki áhrif á rannsóknina. Í framkvæmdateyminu sitja fulltrúar velferðarráðuneytis, Kvennaathvarfs, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, velferðarsviðs og mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Teymið miðlar upplýsingum til samráðsteymisins sem mótar verkferlana og skýrir hlutverk hverrar stofnunar í þjónustu við fórnarlömb.
Þessi aðgreining í tvö teymi er gerð með það að markmiði að tryggja svo sem kostur er skjóta úrlausn í einstaklingsmálum hjá framkvæmdateymi og hins vegar að stuðla að víðtæku samráði, þróa verkferla og vinna að öðrum verkefnum sem m.a. felast í 11. aðgerð að „skoða möguleika á að þróa úrræði til að bæta félagslega færni og andlega líðan“ fórnarlamba mansals hjá samráðsteymi.
2. Sér ráðherra fyrir sér frekari vinnu í þessum málaflokki sem ekki kemur fram í áðurnefndri áætlun?
Stýrihópur um landssamráð, sem starfar í samræmi við yfirlýsingu þriggja ráðherra um aðgerðir gegn ofbeldi, mun taka mansal til athugunar í störfum sínum en verkefni hópsins er að undirbúa aðgerðaáætlun gegn ofbeldi í íslensku samfélagi á grundvelli landssamráðsins.
Áætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn mansali er mjög víðtæk og felur í sér verkefni á eftirtöldum sviðum: Forvarnir, aðstoð og vernd við fórnarlömb, rannsókn og saksókn mansals, samstarf og samráð og mat á árangri. Innanríkisráðuneytið hefur yfirumsjón með framkvæmd áætlunarinnar en velferðarráðuneytið hefur umsjón með þeim verkefnum sem snúa að velferðarþjónustu við fórnarlömb mansals.