Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 539 — 393. mál.
Viðbót.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um tilvik sem tengjast starfsemi kampavínsklúbba.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Hversu mörg tilvik, sem tengjast starfsemi svokallaðra kampavínsklúbba, hafa verið skráð í dagbók lögreglu árin 2011–2015?
2. Hversu mörg tilvik, sem tengjast starfsemi svokallaðra kampavínsklúbba, hafa verið skráð í málaskrá lögreglu árin 2011–2015?
3. Hafa einhver þessara tilvika leitt til rannsóknar lögreglu? Ef svo er, hverjar hafa lyktir rannsókna orðið?
4. Hvers eðlis eru umrædd tilvik?
Skriflegt svar óskast.