Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 561 — 298. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Björgvini G. Sigurðssyni
um kostnað við sérstakan gjaldmiðil.
Leitað var eftir upplýsingum hjá Seðlabanka Íslands vegna fyrirspurnarinnar. Í svari bankans kemur fram að ekki er til neitt endanlegt svar við fyrirspurninni eða forskrift að því hvernig vega eigi saman ólíka kostnaðar- og ábataliði en vísað er í sérrit Seðlabankans Valkostir Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum nr. 7, 2012, þar sem fjallað er ítarlega um þessi viðfangsefni. Þessa skýrslu Seðlabankans má nálgast á vef bankans.
1. Hver er áætlaður árlegur kostnaður samfélagsins við að halda úti sérstökum gjaldmiðli, hvernig verður sá kostnaður til og hvernig skiptist hann á milli einstakra sviða samfélagsins?
2. Hver er ávinningur samfélagsins af upptöku alþjóðlegrar myntar á borð við evru?
Mat á áætluðum kostnaði og ábata af því að reka eigin gjaldmiðil er margþætt og ómögulegt er að leggja einfalt tölulegt mat á þá þætti. Kostnaðurinn felst m.a. í óvissu í viðskiptum og því að þurfa að skipta á milli gjaldmiðla í viðskiptum við önnur lönd. Eigin gjaldmiðli getur einnig fylgt kostnaður virki hann sem hindrun á viðskipti við önnur lönd eða auki hann sveiflur í þjóðarbúskapnum. Á móti kann eigin gjaldmiðill og peningastefna að auðvelda aðlögun þjóðarbúskaparins að efnahagsáföllum sem eru sértæk fyrir innlendan þjóðarbúskap.
3. Hver er áætlaður beinn árlegur vaxtakostnaður íslenskra heimila annars vegar og fyrirtækja hins vegar vegna íslensku krónunnar, samanborið við vaxtastig alþjóðlegra mynta á borð við evru?
Í áðurnefndri skýrslu Seðlabankans er fjallað um þróun vaxta í aðildarríkjum evrusamstarfsins í kjölfar þess að þau gengu í myntsamstarfið og raktar niðurstöður fræðilegra líkana um hvaða áhrif aðild gæti haft á vaxtastig á Íslandi, sjá 7. kafla. Auk þess eru í skýrslunni reifuð margvísleg önnur sjónarmið er varða hugsanlega aðild Íslands að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu. Í kafla 7.3 er m.a. fjallað um samspil gengisstefnu og vaxtastigs. Fram kemur að gjaldmiðlar ríkja sem eru háð hrávöruútflutningi séu sérstaklega áhættusamir og sama gildir um gjaldmiðla lítilla ríkja. Um Ísland gildir hvort tveggja og því má gera ráð fyrir að vextir þurfi að vera hærri hér en í þeim löndum sem tilheyra stærra myntsvæði. Auk þessa er samþætting íslenska fjármálakerfisins til staðar og því má gera ráð fyrir að ávinningur þess að tilheyra stærra myntsvæði sé enn meiri. Seðlabankinn mat að teknu tilliti til allra þessara þátta áhættuþóknunina um 0,6 prósentur fyrir Ísland. Í riti Seðlabankans er einnig vísað í niðurstöður Hassans frá árinu 2010 þar sem hann skoðar sérstaklega samspil stærðar hagkerfa OECD-ríkja og vaxtamunar gagnvart Bandaríkjunum og þau áhrif sem fyrirkomulag gengismála hefur á vaxtamuninn þegar búið er að taka tillit til fjölda annarra þátta sem geta haft áhrif á hann, eins og skuldaraáhættu, dýptar innlends fjármálamarkaðar og gengissveiflna. Niðurstöður hans sína að stærð hagkerfisins í hlutfalli við stærð bandaríska hagkerfisins hefur afgerandi áhrif á vaxtamuninn og að hægt sé að minnka vaxtamuninn með aðild að stærra myntsvæði. Í tilfelli Íslands metur hann að aðild Íslands að evrusvæðinu mundi lækka raunvaxtastigið um 1,5 prósentu. Ef við gefum okkur að kostnaðurinn fyrir heimilin sé á bilinu 0,6–1,5 prósent þá er kostnaðurinn 11–29 milljarðar kr. vegna íslensku krónunnar miðað við heildarskuldir heimila í lok september 2015, sem voru um 1.900 milljarðar kr. Erfiðara er að áætla þennan kostnað fyrir fyrirtækin þar sem þau hafa meiri sveigjanleika í lántökum sínum og meira svigrúm til að dreifa áhættunni, t.d. með lántökum erlendis.