Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 594 — 414. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um stjórnsýslu dómstóla.
Frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur.
1. Hvernig hefur ráðherra brugðist við ábendingum GRECO frá 28. mars 2013 um dómskerfið, sbr. enn fremur eftirfylgniskýrslu GRECO frá 27. mars sl.?
2. Hefur ráðherra brugðist við ábendingum umboðsmanns Alþingis í skýrslum hans fyrir árin 2003, 2009 og 2012, og enn fremur sérstöku bréfi umboðsmanns til ráðherra 2012, um annars vegar skýrari umgjörð um stjórnsýslu dómstóla með hliðsjón af málsmeðferðarreglum stjórnarsýsluréttar og hins vegar starfssvið umboðsmanns Alþingis þegar kemur að eftirliti stjórnsýslu dómstóla, svo sem stjórnsýslu dómstólaráðs og nefndar um dómarastörf?
3. Telur ráðherra ástæðu til að bregðast við ábendingum og athugasemdum í umsögn réttarfarsnefndar frá apríl 2015 við drög að frumvörpum tengdum upptöku millidómstigs varðandi endurskoðun stjórnsýslu dómstólanna í heild og sérstaklega varðandi:
a. sameiginlegt dómstólaráð í samræmi við tilmæli alþjóðlegra samþykkta dómara og það markmið að efla sjálfstæði dómstóla og traust almennings á þeim,
b. skipun og starfssvið dómstólaráðs,
c. endurskipulagningu yfirstjórnar héraðsdómstólanna,
d. gagnrýni á að dómarar hafa ekki möguleika á að bera ágreining við dómstjóra undir óháðan aðila,
e. eftirlit innan dómskerfisins,
f. fyrirkomulag fjárveitinga til dómstóla, m.a. að teknu tillit til þess hve stofn- og rekstrarkostnaður nýs millidómstóls yrði hár?
Skriflegt svar óskast.