Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 615 — 351. mál.
Svar
iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur
um rafrænar mælingar á fjölmiðlanotkun og skoðanakannanir.
Ráðherra óskaði eftir upplýsingum frá Ríkisútvarpinu ohf., 365 miðlum hf., Skjá miðlum ehf. (sem hafa sameinast Símanum hf.), Samkeppniseftirlitinu og Capacent ehf. Svör við fyrirspurninni eru unnin upp úr þeim upplýsingum sem bárust ráðuneytinu. Aðilum var veittur skammur frestur til að koma upplýsingunum á framfæri og er þeim þakkað fyrir liðleg og skjót viðbrögð. Viðbrögð bárust ekki frá Ríkisútvarpinu ohf.
1. Á hvaða grunni byggðist undanþága frá 10. gr. samkeppnislaga, sbr. 15. gr. laganna, sem fól í sér að RÚV, 365 miðlar og Skjárinn fengju, samkvæmt samningi sem undirritaður var árið 2007, að hafa samstarf við Capacent um mælingar á fjölmiðlanotkun með rafrænum útbúnaði?
Ekki þarf að sækja um undanþágu nema samstarf brjóti gegn 10. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005, eða er líklegt til að raska samkeppni á markaði. Samkeppniseftirlitið veitir undanþágur á grundvelli 15. gr. samkeppnislaga. Það var mat Samkeppniseftirlitsins að samningur um fjölmiðlanotkun á rafrænum búnaði hefði ekki það markmið að raska samkeppni. Þó var talið að samstarfið, upplýsingagjöf og aðgangur að því gæti leitt til röskunar á samkeppni. Að mati Samkeppniseftirlitsins uppfyllti samstarfssamningurinn skilyrði a–d-liðar 15. gr. samkeppnislaga og því var veitt undanþága með skilyrðum. Skilyrði undanþágunnar vörðuðu þá þætti sem helst gátu raskað samkeppni. Nánar má lesa um ákvörðunina í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 61/2008.
2. Er undanþágan enn í gildi?
Nei, ákvörðun nr. 61/2008 rann úr gildi 2. apríl 2013. Nýja Capacent (síðar Gallup) gerði tvíhliða samninga við þá fjölmiðla sem voru þátttakendur í mælingunni og því ekki um formbundið samstarf að ræða. Samkeppniseftirlitið hefur fylgst með samstarfinu. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 13/2014 er komist að þeirri niðurstöðu að rafrænar mælingar Capacent gætu verið til þess fallnar að raska samkeppni. Vegna málsins undirgekkst Capacent sátt við Samkeppniseftirlitið sem felur í sér að Capacent þarf að hlíta tilteknum skilyrðum við framkvæmd mælinga. Nánari umfjöllun um þetta er að finna í ákvörðun nr. 13/2014.
3. Hvernig fara mælingar af þessu tagi fram? Er valinn hópur sem er forkannaður og ef svo er, hver velur hann?
Rafrænar mælingar (e. portable people meter „ppm“) eru framkvæmdar með ppm-mælum sem einstaklingar í úrtaki mælinga bera á sér. Mælirinn er lítið raftæki sem nemur sérstakt falið hljóðmerki sem komið er fyrir í útsendingu þeirra sjónvarps- og útvarpsstöðva sem mældar eru en mannseyrað nemur ekki. Í lok hvers dags er tækinu komið fyrir í tengikví sem sér um að senda upplýsingarnar í miðlæga tölvu mælanda. Hópur þátttakenda er valinn með það fyrir augum að þátttakendur endurspegli almenning í landinu. Þáttakendur eru valdir með handahófskenndu úrtaki úr þjóðskrá. Sjá nánar um þetta á heimasíðu Gallup:
www.gallup.is/umrafraenarljosvakamaelingar.
4. Er sama háttalag, þ.e. rafrænn útbúnaður, notað við skoðanakannanir sem varða fylgi stjórnmálaflokka og önnur álitaefni, svo sem andstöðu við Evrópusambandið?
Búnaðurinn er notaður til að mæla áhorf og hlustun á ljósvakamiðla. Mælibúnaðurinn mælir ekki viðhorf eða stjórnmálaskoðanir fólks. Slíkar mælingar hjá Gallup fara fram með hefðbundnum spurningakönnunum í gegnum síma eða net.