Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 617  —  419. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um innflæði gjaldeyris.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


    Hversu háum upphæðum nemur innflæði gjaldeyris á árinu 2015 sundurliðað eftir:
     a.      langtímainnslánreikningum,
     b.      kaupum á verðbréfum, skipt eftir flokkum verðbréfa,
     c.      hlutabréfakaupum,
     d.      fjárfestingum í fasteignum,
     e.      fjárfestingum í atvinnurekstri, skipt eftir atvinnugreinum,
     f.      öðrum fjárfestingum erlendra aðila,
     g.      aðilum sem standa að innflæðinu, svo sem bönkum, fjárfestingasjóðum eða áhættufjárfestum?


Skriflegt svar óskast.