Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 625  —  426. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um starfshóp um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Hvenær er þess að vænta að starfshópur um framtíðarskipan fæðingarorlofsmála, sem skipaður var 5. desember 2014, leggi fram niðurstöður sínar?
     2.      Stefnir ráðherra að breytingum á skipan fæðingarorlofsmála á yfirstandandi kjörtímabili og í hverju mundu þær felast?