Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 727 — 439. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um aldurssamsetningu
æðstu stjórnar ráðuneytisins og stofnana þess.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig er aldurssamsetning æðstu stjórnar ráðuneytisins, stofnana þess og fulltrúa í nefndum og ráðum sem heyra undir það?
Til æðstu stjórnar ráðuneytisins teljast ráðuneytisstjóri, prótókollstjóri og skrifstofustjórar sem eru fimm. Aldurssamsetning hennar er þannig að einn starfsmaður er á aldursbilinu 41–45 ára, tveir á aldursbilinu 46–50 ára, tveir á aldursbilinu 51–55 ára, einn á aldursbilinu 56–60 ára og einn á aldursbilinu 61–65 ára.
Aðeins ein stofnun er tengd ráðuneytinu, Íslandsstofa. Framkvæmdastjóri hennar er á aldursbilinu 61–65 ára.
Ráðuneytið hefur aðeins upplýsingar um aldur þeirra sem sitja í nefndum og ráðum sem undir það heyra ef það greiðir meðlimum þeirra nefndarlaun vegna þeirra starfa. Eins og er greiðir ráðuneytið engum slík laun.