Ferill 469. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 752  —  469. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um íslenska tungu í stafrænum heimi.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hver eru áform ráðherra varðandi stöðu íslenskrar tungu í stafrænum heimi?
     2.      Hvað líður fullri fjármögnun verkefnisins með skírskotun til þarfagreiningar og orða ráðherra um málefnið?
     3.      Hvernig verður háttað boðuðu samstarfi við atvinnulífið um stafræna íslensku?