Ferill 471. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 754 — 471. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi,
nr. 41/2015 (markmið í loftslagsmálum).
Flm.: Katrín Jakobsdóttir.
1. gr.
Við 5. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: að sýnt sé fram á að fjárfestingarverkefnið samræmist skuldbindingum Íslands og markmiðum íslenskra stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Meðal þess sem getur orðið til þess að fjárfestingarverkefni standist kröfur um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, ef þeim fylgir losun slíkra lofttegunda, eru alþjóðlega viðurkenndar aðgerðir til að draga úr slíkri losun sem geta m.a. falist í:
a. kolefnisjöfnun samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stöðlum,
b. kaupum á upprunaábyrgðum á raforku sem tryggja að raforka sem nýtt verður hafi ekki valdið losun gróðurhúsalofttegunda,
c. öðrum viðurkenndum ráðstöfunum sem tryggja að starfsemin verði ekki til þess að auka losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.
Með frumvarpi þessu er því lögð til breyting á lögum um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi. Í 5. gr. laganna koma fram þau skilyrði sem fjárfestingarverkefni þurfa að uppfylla svo að heimilt sé að veita ívilnanir vegna þeirra. Með frumvarpinu er lagt til að nýr stafliður bætist við greinina þar sem kveðið verði á um að sýna þurfi fram á að fjárfestingarverkefni samræmist skuldbindingum Íslands og markmiðum íslenskra stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda svo að til álita geti komið að veita ívilnanir vegna þess.