Ferill 480. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 763  —  480. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um beitingu lagaákvæða um heimild til
að krefja útlendinga um greiðslu kostnaðar.

Frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.


     1.      Hefur á undanförnum fimm árum verið beitt ákvæði í 4. mgr. 34. gr. laga um útlendinga, um að krefja skuli útlending um endurgreiðslu kostnaðar af réttaraðstoð að hluta til eða öllu leyti ef hann hefur ráð á því, og ef svo er, hversu oft hefur ákvæðinu verið beitt og hversu háar upphæðir er um að ræða samtals og í hverju tilviki fyrir sig?
     2.      Hefur á undanförnum fimm árum verið beitt ákvæði 3. mgr. 47 gr. b laga um útlendinga, um að Útlendingastofnun geti krafið hælisleitanda um endurgreiðslu kostnaðar vegna fyrirgreiðslu við hann ef í ljós kemur að hann hafi ekki haft þörf fyrir hana, og ef svo er, hversu oft hefur ákvæðinu verið beitt? Um hversu háar upphæðir er að ræða samtals og í hverju tilviki fyrir sig og hvaða aðferðum er beitt við innheimtu slíkra krafna?
     3.      Eru uppi áform um að breyta framangreindum lagaákvæðum eða fella þau brott?


Skriflegt svar óskast.