Ferill 440. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 793 — 440. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um aldurssamsetningu
æðstu stjórnar ráðuneytisins og stofnana þess.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig er aldurssamsetning æðstu stjórnar ráðuneytisins, stofnana þess og fulltrúa í nefndum og ráðum sem heyra undir það?
Aldurssamsetning æðstu stjórnar ráðuneytisins, stofnana þess og fulltrúa í nefndum og ráðum er samkvæmt meðfylgjandi töflu.
Í töflunni er aldri starfsmanna skipt í fimm aldursbil og má sjá prósentuskiptingu undir hverju aldursbili. Æðsta stjórn ráðuneytisins telur ráðherra, ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra en æðsta stjórn stofnana telur forstöðumenn þeirra. Í samantektinni varðandi nefndir og ráð voru eingöngu teknir með aðalmenn og í þeim tilvikum þar sem sami einstaklingur er í mörgum nefndum og ráðum er viðkomandi eingöngu talinn með í einni nefnd sem hann situr í.
| Aldur | Ráðuneyti | Stofnanir | Nefndir og ráð |
| Yngri en 30 ára | 0% | 0% | 2% |
| 30–39 ára | 0% | 2% | 10% |
| 40–49 ára | 25% | 30% | 26% |
| 50–59 ára | 63% | 35% | 33% |
| 60 ára og eldri | 13% | 33% | 29% |
| Meðalaldur | 56 ár | 55 ár | 54 ár |