Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 795  —  441. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni
um aldurssamsetningu æðstu stjórnar ráðuneytisins og stofnana þess.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig er aldurssamsetning æðstu stjórnar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, stofnana þess og fulltrúa í nefndum og ráðum sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra?

    Aldurssamsetning æðstu stjórnar ráðuneytisins, stofnana þess og fulltrúa í nefndum og ráðum er samkvæmt meðfylgjandi töflu. Miðað er við stöðu 31. desember 2015 og náði samantektin til alls 206 einstaklinga.
    Í töflunni kemur fram fjöldi einstaklinga á fimm mismunandi aldursbilum, auk heildarfjölda og meðalaldurs fyrir allt ráðuneytið annars vegar og hins vegar A-hluta stofnanir, nefndir og ráð sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Til æðstu stjórnar ráðuneytisins teljast ráðherra, ráðuneytisstjóri og skrifstofustjórar, en til æðstu stjórnar stofnana teljast forstöðumenn stofnana. Í samantektinni varðandi nefndir og ráð voru eingöngu teknir aðalmenn og í þeim tilvikum þar sem sami einstaklingur er í mörgum nefndum og ráðum er viðkomandi talinn með í öllum nefndum og ráðum sem hann situr í.

Ráðuneyti Stofnanir Nefndir og ráð
Yngri en 30 ára 0 0 0
30–39 ára 1 0 30
40–49 ára 1 0 46
50–59 ára 3 2 57
60 ára og eldri 1 2 73
Fjöldi 6 4 206
Meðalaldur 52 ár 58 ár 53 ár