Ferill 502. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 797 — 502. mál.
Fyrirspurn
til forseta Alþingis um ritun sögu kosningarréttar kvenna og
verkefni Jafnréttissjóðs Íslands.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvernig hyggst forseti Alþingis bregðast við eftir að framlög samkvæmt samningi Alþingis og Sögufélags um ritun sögu kosningaréttar kvenna, sem gerður var 31. október 2014, voru felld niður og verkefninu vísað til Jafnréttissjóðs Íslands við gerð fjárlaga fyrir árið 2016?
2. Hvaða áhrif hefur þessi ráðstöfun á framvindu verkefnisins sem hér um ræðir og tækifæri stjórnar Jafnréttissjóðs Íslands til að verja fé sjóðsins í samræmi við tilefni hans og markmið?
Skriflegt svar óskast.