Ferill 521. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 826  —  521. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um fullnustugerðir og fjárnám árin 2008–2015.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


     1.      Hversu margar fasteignir annars vegar einstaklinga og hins vegar lögaðila voru seldar nauðungarsölu á mánuði í hverju sýslumannsembætti árin 2008–2015?
     2.      Hversu mörg fjárnám fóru fram á mánuði hjá annars vegar einstaklingum og hins vegar lögaðilum í hverju sýslumannsembætti árin 2008–2015?
     3.      Hversu margir einstaklingar og lögaðilar voru skráðir með árangurslaust fjárnám hvern mánuð árin 2008–2015?


Skriflegt svar óskast.