Ferill 523. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 828  —  523. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um ráðgjafarnefnd
og fagráð Menntamálastofnunar.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur


1.      Hverjir skipa ráðgjafarnefnd Menntamálastofnunar og hversu oft hefur nefndin fundað?
2.      Á hvaða verksviðum stofnunarinnar hafa fagráð verið stofnuð? Hafa fagráðunum verið settar starfsreglur?


Skriflegt svar óskast.