Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 915  —  549. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur um embættismenn.


     1.      Hver er heildarfjöldi embættismanna sem starfa hjá ráðuneytinu og stofnunum þess?
    Heildarfjöldi embættismanna í ráðuneytinu og stofnunum þess er 13.

     2.      Skipan hve margra þeirra rennur út á þessu ári og skipan hve margra á ári hverju 2017–2020?
    Núverandi skipunartíma eins embættismanns lýkur árið 2016, eins árið 2017, þriggja árið 2018, fjögurra árið 2019 og tveggja árið 2020.

     3.      Hve margir embættismenn eru á þessu ári 60–64 ára, 65–66 ára og 67–69 ára og hve margir verða 70 ára á næsta ári?
    Einn embættismaður er á aldursbilinu 60–64 ára og einn á aldursbilinu 67–69.

     4.      Hve margir embættismenn starfa sem skrifstofustjórar innan ráðuneytisins án mannaforráða?
    Einn skrifstofustjóri starfar innan ráðuneytisins án mannaforráða.