Ferill 570. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 930  —  570. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um apótek og lausasölu lyfja.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Er möguleiki á lausasölu ákveðinna lyfja í dreifbýli, svo sem verkjastillandi eða bólgueyðandi lyfja, hóstasafts o.fl.?
     2.      Hvaða reglur gilda um lyf í lausasölu og hver er munurinn á þeim og reglum um lyfseðilsskyld lyf?
     3.      Hversu mörg apótek eru á landinu og hve mörg eru í hverjum landshluta?
     4.      Hversu mörg apótek eru ekki með hefðbundinn opnunartíma?
     5.      Hafa lyfjasendingar til apóteka úti á landi tafist um meira en sólarhring?
     6.      Geta þeir sem búa langt frá apóteki fengið lyf send heim?
     7.      Hefur verið stefnt að því að auka lyfjaþjónustu í brothættum byggðum?