Ferill 579. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 941  —  579. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um skil sérfræðilækna á starfsemisupplýsingum.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hefur hlutfall sérfræðilækna sem skila starfsemisupplýsingum hækkað frá árinu 2012?
     2.      Hafa skil á upplýsingum frá lýtalæknum aukist?
     3.      Hvernig hefur landlæknir fylgt eftir lagaskyldu til upplýsingaöflunar frá sjálfstætt starfandi læknum í þágu eftirlits?
     4.      Hvaða úrræði hefur landlæknir til að fylgja upplýsingaöflun eftir?
     5.      Telur ráðherra stöðuna á skilum sérfræðilækna á starfsemisupplýsingum viðunandi?