Ferill 590. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 964  —  590. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um erlend skattaskjól.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hvaða árangri skiluðu kaup á gögnum um fjármuni Íslendinga í erlendum skattaskjólum sem ráðist var í árið 2015 með tilliti til álagningar skatts?
     2.      Hversu miklu fé var varið til kaupa á þessum gögnum?
     3.      Hversu mörg mál voru rannsökuð á grundvelli gagnanna?


Skriflegt svar óskast.