Ferill 591. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 965  —  591. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Er stefnt að auknum einkarekstri í heilbrigðisþjónustu og ef svo er, á hvaða sviðum?
     2.      Telur ráðherra að réttindi sjúklinga sem nýta sér einkarekna heilbrigðisþjónustu séu nægilega trygg með tilliti til mistaka sem kunna að verða?
     3.      Hvernig er háttað kröfum um tryggingar þeirra sem starfrækja einkarekna heilbrigðisþjónustu? Telur ráðherra nægilega tryggt að heilsufarstjón sem fólk kann að verða fyrir vegna mistaka í einkarekinni heilbrigðisþjónustu verði ekki til að valda kostnaði í opinbera heilbrigðiskerfinu?
     4.      Sér ráðherra fyrir sér breytingar á rekstrarumhverfi einkarekinnar heilbrigðisþjónustu í þá veru að markaðsstarf aukist, t.d. með auglýsingum á verðskrám, tilboðum o.þ.h.?


Skriflegt svar óskast.