Ferill 602. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 982  —  602. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um aðgerðir til að takmarka plastumbúðir.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Gilda einhverjar reglur um takmörkun plastumbúða hér á landi?
     2.      Hvaða leiðir telur ráðherra heppilegastar til að fækka plastumbúðum?
     3.      Hvaða leiðir telur ráðherra heppilegastar til að draga úr notkun samsettra umbúða sem flókið getur reynst að endurvinna?
     4.      Telur ráðherra heppilegt að víkka starfssvið starfshóps um aðgerðir til að draga úr notkun plastpoka þannig að tillögur um stjórntæki til að takmarka alla plastnotkun verði líka hluti af verkefnum hópsins?