Ferill 605. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 985 — 605. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Frá Elsu Láru Arnardóttur.
1. Hefur ráðherra áætlanir um að efla og auka þjónustustig Heilbrigðisstofnunar Vesturlands með það að markmiði að létta álagi af Landspítalanum? Ef svo er, hvaða svið snerta þær áætlanir?
2. Telur ráðherra að gera ætti Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi að varasjúkrahúsi fyrir Landspítalann?
Skriflegt svar óskast.