Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1033, 145. löggjafarþing 385. mál: sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla (útvíkkun skilgreiningar).
Lög nr. 19 30. mars 2016.
Ólögmætur er sá sjávarafli:
Þingskjal 1033, 145. löggjafarþing 385. mál: sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla (útvíkkun skilgreiningar).
Lög nr. 19 30. mars 2016.
Lög um breytingu á lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, nr. 37/1992, með síðari breytingum.
1. gr.
1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Ólögmætur er sá sjávarafli:
- sem er umfram það aflamark eða krókaaflamark sem veiðiskip hefur eða umfram hámarksafla sem veiðiskipi er settur með öðrum hætti,
- sem fenginn er án þess að tilskilin veiðileyfi hafi verið fyrir hendi,
- sem fenginn er utan leyfilegra veiðidaga, nema um eðlilegan meðafla sé að ræða,
- sem fenginn er með óleyfilegum veiðarfærum,
- sem fenginn er á svæði þar sem viðkomandi veiðar eru bannaðar,
- sem 2. mgr. 7. gr. tekur til.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 16. mars 2016.