Ferill 627. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1046  —  627. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um að undirbúa skráningu miðhálendis Íslands á heimsminjaskrá UNESCO.


Flm.: Helgi Hjörvar, Guðlaugur Þór Þórðarson, Helgi Hrafn Gunnarsson,
Róbert Marshall, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Willum Þór Þórsson,
Össur Skarphéðinsson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn Íslands að setja miðhálendi Íslands á yfirlitsskrá yfir þá staði sem ætlunin er að skrá sem heimsminjar UNESCO og fela heimsminjanefnd Íslands að undirbúa umsókn þar að lútandi.

Greinargerð.

    Með þingsályktunartillögu þessari sem er endurflutt lítillega breytt frá 132. löggjafarþingi (747. mál) er lagt til að kannað verði til hlítar hvort skrá megi miðhálendi Íslands í heild sinni á heimsminjaskrá UNESCO. Hin síðari ár hefur færst í vöxt að á heimsminjaskrá séu sett heilu landsvæðin sem af menningarlegum eða náttúrufarslegum ástæðum eru talin svo sérstæð að teljist til sam­eigin­legrar arfleifðar mannsins. Ágætt dæmi um þetta er fyrirhuguð umsókn norskra stjórnvalda um að ytri hluti Lofoten komist á heimsminjaskrá UNESCO en þeir telja að þar fari saman einstök náttúra og menning sem eigi sér fáar hliðstæður í heiminum. Annað dæmi er Laponia-svæðið í Norður-Svíþjóð sem samanstendur af fjórum þjóðgörðum og tveimur friðlýstum svæðum og er eitt stærsta svæði í Evrópu með nánast ósnertri náttúru. Flest bendir til að miðhálendi Íslands sé einmitt slík heild, með þeim margvíslegu náttúrufyrirbærum og náttúruperlum sem þar er að finna.
    Hin ósnortnu víðerni hálendisins hafa yfir að búa margvíslegu og sérstöku náttúrufari. Má þar fyrst nefna að flekamót Evrasíu- og Norður-Ameríkuflekans liggja um hálendið frá suðvestri til norð­austurs og rekur þá hvorn frá öðrum um 2 sm á ári. Jafnframt er íslenski möttulstrókurinn staðsettur undir hálendinu miðju. Þessu fylgja hreyfingar á landi, landris og gliðnun, sem óvíða annars staðar í heiminum eru jafnsýnilegar og aðgengilegar og hér. Eldvirkni, jarðhiti og samspil jökla og vatnaleiða setja mark sitt á svæðið. Þá er þar að finna sérstæðar jarðmyndanir, eldstöðvar og sjaldgæft gróðurfar og þar eru að auki stórar varpstöðvar fugla og búsvæði hreindýra svo eitthvað sé nefnt.
    Fá mannvirki er að finna á miðhálendinu sem gefur því aukið gildi meðal ósnortinna víðerna. Það felur í sér lífsgæði sem verða æ eftirsóknarverðari í nútímasamfélagi sem er náttúruupplifun, ómenguð af iðn- og tæknivæðingu samfélagsins. Þau mannvirki sem þar eru, svo sem vegir og virkjanir, eiga þó ekki að varna skráningu svæðisins og skráning þess kæmi ein og sér heldur ekki í veg fyrir frekari mannvirkjagerð þar, starf að endurheimt landgæða né nýtingu svæðisins til ferðalaga fólks og veiða, en mundi kalla á skipulag og áætlanir um hvernig Ísland hyggist vernda og hlúa að þeirri einstæðu perlu sem miðhálendið er.

Heimsminjaskrá UNESCO.
    Árið 1972 var gerður samningur á þingi Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins. Samningurinn grundvallast á þeirri forsendu að ákveðnir staðir á jörðinni hafi sérstakt alþjóðlegt gildi og eigi sem slíkir að tilheyra sam­eigin­legri arfleifð mannkynsins. Samningurinn er einstakur að því leyti að í honum eru náttúruvernd og friðun menningarminja tengd saman í einu skjali. Með samningnum viðurkenndu ríki nauðsyn verndunar þar sem það er talið skaða arfleifð allra þjóða heims ef einhver hluti hinnar menningarlegu eða náttúrulegu arfleifðar spillist eða hverfur. Alþjóðasamfélagið verndar þannig náttúruminjar sem búa yfir einstakri fegurð og menningarminjar frá fyrri siðmenningarskeiðum sem eru á heimsminjaskrá.
    Hvatinn að gerð samningsins var ákall um að bjarga Abu Simbel í Egyptalandi, Feneyjum á Ítalíu, Moenjodaro í Pakistan og Borobudur í Indónesíu. Ef ekki hefði verið fyrir samstillt átak á alþjóðavettvangi hefðu þessar minjar glatast fyrir fullt og allt.
    Aðildarríkin, sem standa að samningnum, hafa sameinast í því verkefni að bera kennsl á og varðveita merkilegustu náttúru- og menningarminjar í heiminum. Þau virða að fullu fullveldi þjóða og forðast að skerða eignarrétt manna sem kveðið er á um í löggjöf viðkomandi þjóðar en líta svo á að alþjóðasamfélaginu í heild beri skylda til að vernda heimsminjar.
    Til þess að komast á heimsminjaskrá þarf viðkomandi staður að vera einstakur í heiminum, afmörkun hans þarf að vera skýr af hálfu viðkomandi ríkisstjórnar og full sátt þarf að ríkja um verndun, umsjón og rekstrarfyrirkomulag hans. Til þess að tilnefna megi miðhálendi Íslands þyrfti því að fara fram umfangsmikil undirbúningsvinna og stefnumörkun, m.a. um verndun þess. Ef staður er skráður á heimsminjaskrá á hvert ríki þess kost að fá alþjóðasamfélagið til samstarfs um að upplýsa íbúa viðkomandi lands um einstakt gildi staðarins og aðstoða þannig við að varðveita náttúru- og menningarminjar hverrar þjóðar.
    Staðir á heimsminjaskránni draga gjarnan að aukinn fjölda ferðamanna þannig að mikilvægi viðkomandi staða eykst í þjóðhagslegu tilliti. Heimsminjaskráin er talin vera afar öflugt tæki til minja- og náttúruverndar ekki síður en til uppbyggingar vandaðrar ferðaþjónustu í hverju landi.
    Menningarminjar eru hvers kyns söguleg mannvirki, byggingar og menningarlandslag með sögulega, listræna, vísindalega, þjóðfræðilega og mannfræðilega eiginleika.
    Náttúruminjar eru staðir sem hafa jarðfræðilegt, líffræðilegt og vistfræðilegt gildi. Einstök svæði sem búa yfir sérstakri auðlegð eru t.d. eyðimerkur, þjóðgarðar, eldstöðvar, ár og flóar. Hlúa þarf að þessari auðlegð og vernda hana til að viðhalda hinni sérstöku fjölbreytni sem svæðin búa yfir.
    Íslendingar gerðust aðilar að samningnum í desember árið 1995 og hafa lagt fyrir heimsminjanefndina skrá yfir staði sem við viljum tilnefna á heimsminjaskrá svo hægt verði að sækja um formlega. Þingvellir og Skaftafell voru efst á þeim lista. Umsókn um tilnefningu Þingvalla var samþykkt á fundi heimsminjanefndarinnar í Kína 2. júlí 2004.
    Á listanum eru:
          *      Þingvallaþjóðgarður (07/02/2011),
          *      Breiða­fjörður (07/02/2011),
          *      Mývatn og Laxá (07/02/2011),
          *      Íslenskir torfbæir (07/02/2011),
          *      Torfajökull / Fjallabak (15/04/2013),
          *      Vatnajökulsþjóðgarður (07/02/2011),
          *      Víkingaminjar / Þingvallaþjóðgarður (07/02/2011).
    Yfirlitsskráin er nú til endurskoðunar og er þingsályktunartillögu þessari ætlað að vera innlegg í þá endurskoðun. Þannig hefur færst í vöxt að stór landsvæði og landslagsheildir séu tilnefndar í stað einstakra afmarkaðra svæða og eðlilegt að yfirlitsskrá taki mið af þeirri alþjóðlegu þróun.

Heimsminjaskrá – valforsendur.
    Til að fá sæti á heimsminjaskránni þarf viðkomandi fyrirbæri að vera af einstöku mikilvægi fyrir alþjóðasamfélagið og falla undir að minnsta kosti eina forsendu í valforsendulista skrárinnar. Það er mat flutningsmanna að miðhálendið falli undir forsendur VIII–X sem þýðir að svæðið í heild sinni er dæmi um einstaka náttúrfarslega heild. Það er einstakt í sinni röð hvað það varðar að þar er hægt að sjá merki jarðsögunnar, dæmi um jarðfræðilegt þróunarferli og það er þýðingarmikill vitnisburður um þróun landslagsþátta, landmótun og landfræðileg sérkenni af eðlisrænum toga á mótum gliðnandi jarðskorpufleka. Það sem undirstrikar mikilvægi enn frekar er einstakt samspil möttulstróks og gliðnandi úthafsflekamóta sem hvergi eru sjáanleg á yfirborði jarðar annars staðar en hér. Á svæðinu er einnig að finna einstök dæmi um mikilvæg vistfræðileg og líffræðileg þróunarferli sem og þróun vistkerfa jarðar og fersk­vatns og þróun plöntu- og dýrasamfélags. Einnig má færa rök að því að á svæðinu séu mikilvæg og þýðingarmikil dæmi um náttúruleg búsvæði, þ.m.t. svæði sem innihalda teg­undir í hættu sem vernda beri „in situ“ (á sínum stað) og eru afar mikilvægar út frá alheimssjónarmiði og sjónarhóli vísinda og verndunar. Enn fremur má færa rök fyrir einstakri fegurð svæðisins, fegurð sem felst fyrst og fremst í landslagsheildinni og uppfyllir þar með VII. flokk skilgreininga UNESCO.

Afmörkun miðhálendis Íslands samkvæmt greinargerð um Miðhálendi Íslands, svæðisskipulag 2015.
    Miðhálendi Íslands nær yfir u.þ.b. 40% af landinu eða ríflega 44.000 km². Það skiptist í átta landslagsheildir, auk jökla, sem aftur skiptast í samtals 57 deilisvæði. Víða nær afmörkun deilisvæða út fyrir mörk skipulagssvæðisins og eru þau auðkennd sérstaklega með stjörnu (*) í greinargerð með svæðisskipulagi miðhálendis Íslands og fylgir lýsingin hér með:
    Norð­vesturhálendi: Afréttur Lunddæla og Andkílinga – Ok*, Eiríksjökull – Hallmundarhraun, Arnar­vatns­heiði – Tvídægra*, Stórisandur, Grímstungu­heiði, Auðkúlu­heiði og Eyvindarstaða­heiði*, Beljandatungur – Guðlaugstungur, Hofsafrétt – jaðarsvæði Hofsjökuls*, vesturhluti Kjalar, Kjalhraun – Bald­heiði.
    Norðurhálendi: Nýjabæjarfjall – Mjóidalur*, Sprengisandur – Bleiksmýrardrög, drög Skjálfanda­fljóts, Fljótsalda – Króksdalur.
    Norð­austurhálendi, suðurhluti: Trölladyngja, Ódáðahraun*, Askja – Dyngjufjöll, Herðubreið, Kverkfjöll – Krepputunga, Brúardalir, Fagridalur og Álftadalur, Efrafjall (Grjót).
    Norð­austurhálendi, norðurhluti: Keldunes­heiði – Þeistareykir*, Norðurfjöll*, Hólsfjöll*, Haugsöræfi*.
    Austurhálendi: Jökuldals­heiði – Smjör­vatns­heiði*, Fljótsdals­heiði*, Vesturöræfi – Snæfell, Hraun*, Lónsöræfi – Þrándarjökull (Austfjarðafjallgarður)*, Suður­sveitarfjöll (hálendið suð­austan Vatnajökuls), Öræfi*.
    Suðurhálendi, austurhluti: Björninn – Eystrafjall, Geirlandshraun (Síðufjöll)*, Lakagígar – Núpahraun, Grænifjallgarður – Tungnaárfjöll, Veiðivötn – Jökulheimar, Þórisvatn – Vonarskarð, Tungnafellsjökull – Vonarskarð.
    Suðurhálendi, suðurhluti: Höfðabrekku­heiði – Eyjafjöll*, Eldgjá – Mælifellssandur – Emstrur, Þórsmörk – Tindfjöll – Laufaleit*, Torfajökull – Löðmundur, Hekla – Vatnafjöll*.
    Suðurhálendi, vesturhluti: Þóristungur – Búðar­háls – Gljúfurleit, Kjalvötn – Kvíslaveita, Þjórsárver, Kerlingafjöll, Hreppafjöll, efri hluti, Hreppafjöll, neðri hluti*, Hrunamannaafréttur, vesturhluti – Biskups­tungnaafréttur, innri hluti, Biskups­tungnaafréttur, neðri hluti, jaðarsvæði Langjökuls, Ármannsfell – Skjaldbreiður – Högn­höfði*.
    Jöklar: Langjökull, Eiríksjökull og Þórisjökull, Hofsjökull, Vatnajökull, Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull.

    Heimildir.
     www.thingvellir.is/heimsminjaskra/hvad-er-heimsminjaskra.aspx
     whc.unesco.org/en/criteria
     whc.unesco.org/en/tentativelists/state=is
    Miðhálendi Íslands, svæðisskipulag 2015, greinargerð. Um­hverfisráðuneytið og Skipulagsstofnun, 1999.