Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1055 — 632. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008,
með síðari breytingum (samningar um heilbrigðisþjónustu).
Flm.: Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Árni Páll Árnason, Oddný G. Harðardóttir,
Helgi Hjörvar, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Valgerður Bjarnadóttir.
1. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Það er jafnframt forsenda samningsgerðar um rekstur heilbrigðisstofnana eða heilsugæslu, sbr. 14., 15. og 17. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, að fyrir liggi ályktun Alþingis um samningsgerðina sem feli í sér helstu forsendur hennar, sbr. 2. mgr., m.a. um magn, tegund og gæði þjónustu, endurgjald til veitanda og eftirlit með framkvæmd samnings.
b. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í samningi um heilbrigðisþjónustu skal kveðið á um ráðstöfun hagnaðar þess aðila sem veitir heilbrigðisþjónustu sem skal m.a. fela í sér bann við arðgreiðslum.
2. gr.
Greinargerð.
Að undanförnu hefur komið fram að stefna ríkisstjórnarinnar er að færa sífellt meira af grunnstoðum velferðarkerfisins í einkarekstur. Að mati flutningsmanna verður ekki við það unað enda þarf að virða vilja mikils meiri hluta þjóðarinnar um að grunnþjónusta, líkt og heilbrigðisþjónusta, verði veitt af hinu opinbera. Tryggja þarf að einkaaðilar fleyti ekki rjómann í samningum við hið opinbera á þann veg að þeir fái greitt án þess að axla sambærilegar skyldur og opinberir aðilar þurfa að gera. Tryggja þarf að allir landsmenn hafi jafnan aðgang að þjónustunni og að greiðsluþátttöku sjúklinga verði haldið í lágmarki. Þá hafa fræðimenn margir bent á að einkarekstur í heilbrigðiskerfi auki frekar heildarkostnað en að hann dragi úr honum vegna hás stjórnunarkostnaðar, aukins eftirlitskostnaðar, ósveigjanleika í þjónustusamningum og ósamhæfðrar og ósamfelldrar þjónustu. Í könnun sem gerð var í apríl 2013 kom fram að 80% landsmanna vildu að rekstur heilbrigðisþjónustu yrði fyrst og fremst á vegum hins opinbera. Þá hafa nýlega rúmlega 85 þúsund manns skrifað undir undirskriftarlista þess efnis að setja eigi heilbrigðismálin í forgang og leggja aukið fé í heilbrigðiskerfið.
Með frumvarpinu er einnig lögð til sú breyting á 40. gr. laga um sjúkratryggingar að í samningi um heilbrigðisþjónustu skuli kveðið sérstaklega á um ráðstöfun hagnaðar sem til verður í rekstri þess einkaaðila sem gerður er samningur við. Skal í samningnum m.a. kveðið á um að viðkomandi aðila sé óheimilt að greiða arð til eigenda sinna. Í ákvæðinu felst því skilyrðislaust bann við arðgreiðslum þegar gerðir eru samningar um heilbrigðisþjónustu og jafnframt verði heimilt að kveða á um hvernig hagnaði skuli að öðru leyti ráðstafað. Ákvæðið gildir um alla samninga um heilbrigðisþjónustu sem gerðir eru á grundvelli laga um sjúkratryggingar og rétt að taka fram samhengis vegna að gildissvið þess er því mun rýmra en ákvæði a-liðar 1. gr. þessa frumvarps. Tilgangur þessa ákvæðis er augljós en hann er að koma í veg fyrir að skattfé almennings, sem varið er til að veita landsmönnum heilbrigðisþjónustu, verði varið í arðgreiðslur til eigenda félaga sem hafa gert samning við ráðherra um veitingu heilbrigðisþjónustu og greitt er fyrir að hluta eða öllu leyti með skattfé almennings. Skattfé sem Alþingi hefur ákveðið með fjárlögum að nýta skuli í heilbrigðiskerfinu á með sönnu að nýta þar. Ef afgangur er í rekstri einkaaðila sem fjármagnaður er með skattfé ber að nýta þann afgang til fjárfestingar í rekstrinum og auka þannig gæði þjónustunnar, bæta umbúnað sjúklinga og starfsskilyrði og menntun starfsfólks og stuðla með því að betri heilbrigðisþjónustu sem nýtir almannafé á ábyrgan hátt. Með þessari tillögu er horft til tillagna sama efnis í Svíþjóð en þar hefur sýnt sig með auknum einkarekstri í velferðarþjónustu síðustu ár að arðgreiðslum til eigenda félaga sem starfa í velferðarþjónustu hafa ekki gefið góða raun og sænskir sósíaldemókratar hafa lagt til að slíkum aðilum verði bannað að greiða arð. Árétta ber að eigendur slíkra fyrirtækja geta eftir sem áður greitt sér þau laun sem þeir telja hæfileg miðað við reksturinn. Þeir munu hins vegar ekki geta greitt sér út arð, en skatthlutfall af arðgreiðslum er mun lægra en af launagreiðslum.
Gildandi samningar um heilbrigðisþjónustu halda gildi sínu en við endurnýjun þeirra þurfa þeir að vera í samræmi við ákvæði frumvarps þessa verði það þá orðið að lögum.